Hraunkot – Golfæfingasvæði Keilis
Í Hraunkoti hefur orðið veruleg þróun undanfarin ár – tæknin og aðstaðan hafa aukið komur gesta og leitt til aukinnar notkunar meðal félagsmanna.
Nýja skýlið hefur verið breytt í hitað æfingaskýli með Trackman greiningartækjum í öllum básum. Í tækjunum er hægt að núllstilla veðuraðstæður, sjá og vista helstu upplýsingar um hvert slegið högg, spila fjölda golfvalla og fara í allskyns leiki og keppnir sem gera æfingar í skýlinu markvissari og skemmtilegri en nokkurn tímann áður. Í nýjustu uppfærslu þessara tækja geta kylfingar keppt í golfherma mótum, alþjóðlegum eða innanklúbbs, á Hvaleyrarvelli, eða einhverjum öðrum af bestu golfvöllum heims án þess að þurfa að yfirgefa básinn sinn.
Hitalamparnir hafa stóraukið þægindi þeirra sem kjósa að æfa utandyra og þar sem áður þurfti innanundirboli, flíspeysur og föðurland til að þrauka stutta æfingu geta kylfingar nú stundað vetraræfingar léttklæddari en þeir spiluðu golfhringi sína síðastliðið sumar. Hitalamparnir og greiningartækin eru í öllum básum nýja skýlisins og eru gjaldlausir öllum kylfingum. Þeir sem kjósa ekki að njóta þessarar tæknivæðingar hafa þann kost að kveikja ekki á þeim eða æft sig í gamla skýlinu þar sem eru nýjar mottur og engar græjur.
Inni í Hraunkoti er allt til alls fyrir meðlimi Keilis til að spila mikið og æfa vel. Í Hvalalauginni eru tvær innanhús flatir sem bjóða kylfingum að æfa pútt og vipp, í sléttu eða halla í 340 fermetra rými.
Þar eru einnig staðsettir hinir iO Trackman golfhermarnir sívinsælu sem hafa gert kylfingum og spilahópum kleift að halda áfram sínum vikulegu hefðum þrátt fyrir lokun golfvalla yfir vetrartímann. Golfhermarnir okkar eru af bestu gerð, með nýjustu uppfærslum og hafa gert æfingar og spil innanhúss raunverulegri og einfaldari í notkun en nokkru sinni fyrr.
Aldrei hafa jafn margir félagsmenn, kúnnar golfkennara og gestir sótt æfingaraðstöður klúbbsins í jafn miklu mæli sem færir klúbbnum aukin tækifæri og nýjar áskoranir. Stjórn Keilis samþykkti í september að setja af stað tilraun fyrir nýtt skipulag æfinga íþróttastarfsins veturinn 2025-2026 til þess að tryggja aðgengi allra þeirra sem sækja æfingar í Hraunkoti. Í því fellst að öll innanhús stuttaspilsaðstaðan í Hraunkoti ásamt Nýja-skýlisins verða tekin undir æfingar frá 16:00 – 19:00 alla mánudaga, þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga frá 1. nóvember til 1. apríl en áður var starfið með afnot af helming aðstöðunnar frá 15:00 – 21:00 sömu daga.
Með þessari breytingu tryggjum að hægt sé að taka á móti öllum iðkendum sem skráðir eru í íþróttastarfið á skipulagðar æfingar þar sem þau fá að æfa alla hluti leiksins með viðeigandi hlutfalli iðkenda og þjálfara á tímum sem henta iðkendum starfsins og/eða foreldrum þeirra. Aðrir kostir þessara breytinga eru að iðkendur fá fleiri endurtekningar á hverri mínútu, æfingar lengjast úr 100 mínútur í 140 mínútur í almennri þjálfun, allar æfingar fylgja nú tímaseðlum Afreksþjálfara Keilis og vinnutímar þjálfara í íþróttastarfinu er stórbætt.